Aðalfundur Aflsins verður þann 8. sept kl 20.00
Aðalfundur Aflsins verður í húsnæði Aflsins að Brekkugötu 34 þann 8. september næstkomandi. Tekið verður fyrir ársskýrslan okkar 2010, vetrarstarfið, ný stjórn kosin og almennar umræður. Allir hjartanlega velkomnir.
Fjölmiðlavaktin
Í kjölfar umræðna síðustu daga þá fagnar Aflið skjótum viðbrögðum Stigamóta og afsögn Björgvins Björgvinssonar sjá umfjöllun hér
Mótórhjólafólk safnaði fé til styrktar Aflsins um verslunarmannahelgina
Mótorhjólafólk alls staðar að af landinu hittist í Súpupartýi um verslunarmannahelgina á Akureyri. Þetta er í annað sinn sem Súpupartý Mótórhjólafólks er haldið í bakgarði einum á Akureyri. Gerð var góð súpa, sungið og spilað fram eftir kvöldi og peningar settir í bauk.
Við hjá Aflinu erum afskaplega þakklátar fyrir þetta framtak því hver króna telur á þeim bæ. Víða er verið að safna fé fyrir okkur, yndislegar konur og karlar hafa verið okkur hliðhollt og er það ómetanlegur stuðningur.
Við minnum á reikning Aflsins er 1145-26-2150 og kt. 690702.2150
“Aflið á vaktinni að venju um Versló”
Aflið verður að venju á vaktinni um Verslunarmannahelgina. Við verðum á röltinu um bæinn með nýju bæklingana okkar sem við erum afar ánægðar með. Um helgina mun mótorhjólafólk alls staðar af landinu hittast á Akureyri og fá sér súpu og safna peningum til styrktar Aflsins. Þetta er nú orðið að árlegum viðburði sem þetta mæta fólk hittist og kemur færandi hendi og erum við mjög þakklátar fyrir það.
Við vonum að hátíðir um allt land fari fallega fram undir sólskini og sunnan vindum.
Á einu kvöldi
Nú liggur leið mín norður
og ég veit hvað mín bíður.
Því líf mitt er komið í fastar skorður
og tilhlökkun í hjartanu svíður.
Ég set þig upp, þú góða gríma
og labba inn á næsta bar.
Vel hvaða sál ég ælta að útrýma
Á einu kvöldi, þessu kvöldi
Óheppin að þú ert þar.
Ég sé hvernig þú dansar
Og þar með hef ég þig valið.
Kynþokkafull, falleg og stoltið af þér glansar
Nýtt fórnarlamb ég get kvalið.
Upp að þér labba og gef þér mitt bros
Og segi þér hvað mér finnst um þíg.
Kaldhæðnislegt að við hittumst undir augum amors
þegar eina sem ég vill er að pína þig.
Eitt högg hér og eitt högg þar
ég má samt ekki skilja eftir mar.
Hendi þér við og ríf í þitt hár
“drattastu til að þurrka þessi tár!”
“Grjóthaltu kjafti tíkin þín”
öskra ég um leið og úr fötum þig ríf.
Oh kynþokkafull ertu nú daman mín
Berst er þó að sjá hvernig þú óttast um þitt líf!
Ég sting honum inn
Og unaður yfir mig læðist.
Að sjá þig kveljast ég æsinginn finn
Ég er svo sterkur að þú mig hræðist!
Loksins ég spring
Og sé úr þér blæðir.
Við það ég fæ nettan fiðring
Unaðar tilfinning um mig nú flæðir.
Ég renni upp minni klauf
Og sný mér að þér.
Sé hvað sál þín er orðin dauf
Á einu kvöldi, þessu kvöldi
Óheppin að kynntist þú mér.
höfundur: EÞJ
Velunnari
Viltu gerast velunnari Aflsins ?
Í gegnum heimabankann þinn getur þú gerst velunnari Aflsins. Þú greiðir Aflinu mánaðarlega einhverja X upphæð sem þú finnur ekki mikið fyrir að fari af reikningi þínum, Aflið fær aurana inn í rekstur Aflsins. Þú sendir póst á gunna@aflidak.is og við munum setja þig á lista yfir velunnara Aflsins og láta þig vita þegar við erum að gera eitthvað skemmtilegt.
banka upplýsingar 1145 26 2150 kennitalan okkar 690702 2150
Opið hús í Aflinu
Á morgun föstudag verður opið hús hjá okkur kl 16.00, við eigum svakalega fínt boðsbréf sem ekki verður til sýnir hér af tæknilegum ástæðum, því miður. Við bjóðum alla velkomna að sækja okkur heim á brekkuna, Brekkugötu 34 bakatil. Við verðum flestar á ráðstefnu uppi í Háskóla sem ber nafnið Þögul þjáning og svo eftir hana röltum við niður í Afl. Hlakka til að sjá ykkur.
“Þjónusta í fullum gangi á landsbyggðinni”
Þjónusta í fullum gangi á landsbyggðinni
Af gefnu tilefni viljum við frá Aflinu á Akureyri og Sólstöfum Vestfjarða ítreka að ekki hefur dregið úr þjónustu og starfsemi okkar, heldur hefur þjónusta aukist á milli ára.
Þrátt fyrir skerðingu á fjármagni þá eru samtökin að eflast. Hjá Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldis var 14 % aukning á einkaviðtölum árið 2009 og árið á undan 94 % aukning. Þess má geta að tvær nýjar starfskonur eru að hefja störf og önnur þeirra mun svo starfa á Sauðárkróki. Skjólstæðingar keyra langar vegalengdir til að sækja viðtöl og hópastarf. Forvarnarstarfið er alltaf að aukast enda þörfin sem aldrei fyrr.
Sólstafir Vestfjarða, sjálfshjálparsamtök fyrir þolendur kynferðisofbeldis hafa líka aukið þjónustu sína. 65 % aukning var á komu einstaklinga árið 2009 og voru einstaklingsviðtölin um 70. Sólstafir sinna miklu forvarnarstarfi og eru í samstarfi við Blátt áfram, sem dæmi þá hafa 300 manns setið námskeiðið Verndari barna og yfir 300 skólabörn setið fyrirlestra á undanförnum misserum.
Sólstafir Vestfjarða og Aflið á Akureyri vinna markvisst að sporna við ofbeldi í samfélaginu og að bæta hagi og aðbúnað þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi eða eru í áhættuhóp hvað þetta varðar. Það er sorgleg staðreynd en mikilvægt að halda því til haga að þörfin fyrir þjónustu hefur aldrei verið meiri en nú á þessum samdráttartímum. Aflið og Sólstafir hafa með miklu sjálfboðaliða starfi tekist að auka mjög svo mikilvæga þjónustu við þolendur ofbeldis.
nánar
Guðrún Þórs
talskona Aflsins 6632848
Harpa Stefánsdóttir
talskona Sólstafa 8670394
“Við verðum að berjast gegn kynbundnu ofbeldi”
“Við verðum að berjast gegn kynbundnu ofbeldi” sagði Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra í dag á ráðstefnu Stígamóta sem bar yfirskriftina “nauðganir og viðbrögð samfélagsins við þeim”.
Hún sagði það skyldu ríkisvaldsins að láta málefnið til sín taka hversu fá nauðgunarmál rata til dómsstóla. nánar hér.
Aflskonur voru á svæðinu að sjálfsögðu að fagna afmæli Stígamóta sem var 20 ára í gær og málþingið haldið í tilefni af því.
Fjölmiðlavaktin fagnar
Fjölmiðlavaktin fagnar því að alþingi gerir sitt í jafnréttisbaráttunni sem er jú mannréttindabarátta sjá


