Þú getur alltaf valið
Fjarþjónustu
Fjarþjónusta Aflsins er fyrir alla, óháð staðsetningu. Fjarþjónusta er þannig bæði fyrir þá sem komast ekki á starfstöðvar Aflsins og einnig þá sem vilja frekar ráðgjöf í gegnum síma eða fjarfundarbúnað.
Aflið leggur áherslu á að veita þolendum traust og stuðning í öruggu umhverfi. Með fjarskiptaviðtölum getum við tryggt aðgang að ráðgjöfum án þess að mæta á staðinn.
Öll fjarviðtöl fara fram á miðlum með stórum öryggis ráðstöfunum og þannig nær Aflið að tryggja öryggi þeirra sem þurfa á ráðgjöf að halda. Bæði er hægt að óska eftir símtali eða Teams viðtali.
Það er einnig hægt að blanda saman fjarviðtölum og viðtölum á starfsstöðvum Aflsins ef einstaklingur kýs svo.
Algengar spurningar
Hér getur þú fengið svör við algengum spurningum um fjarviðtöl hjá Aflinu
Viðtölin fara annaðhvort fram í gegnum Teams eða í síma, eftir því hvað hentar viðkomandi best. Áhersla er lögð á öryggi, trúnað og rólegt umhverfi þar sem einstaklingurinn hefur stjórn á aðstæðum og getur tekið þátt á þeim forsendum sem honum líður best með.
Fjarþjónusta er fyrir alla, þá sem hafa aldrei nýtt sér þjónustus Aflsins og þá sem eru í ráðgjöf. Þeir sem sækja þjónustu til Aflsins geta þannig verið staðsettir hvar sem er.
Aflið býður upp á staðviðtöl á Akureyri, Blönduósi, Egilsstöðum, Húsavík, Reyðarfirði og Siglufirði. Allir þeir sem nýta sér fjarþjónustu geta einnig nýtt sér þjónustu Aflsins á þessum stöðum. Skjólstæðingar Aflsins geta þannig kosið að nota fjarþjónustu, staðþjónustu eða hvor tveggja.
