Landssamráðsfundur gegn ofbeldi 2026

Miðvikudaginn 4.mars bauð Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og ríkislögreglustjóri til til landssamráðsfundar um aðgerðir til að draga úr og koma í veg fyrir ofbeldi á Íslandi.
Fundurinn var opinn öllum en sérstaklega ætlaður fulltrúum ríkis, sveitarfélaga, frjálsra félagasamtaka, rannsóknastofnana og öðrum sem láta sig þessi mál varða.

Á fundinum hélt Aflið erindi sem bar heitið „Aflið, þjónusta til þolenda á landsbyggðinni – Þar sem allir þekkja alla“, þar sem fjallað var um mikilvægi þess að tryggja aðgengi að þjónustu fyrir þolendur ofbeldis utan höfuðborgarsvæðisins og þær sérstöku áskoranir sem fylgja því að veita slíka þjónustu í smærri samfélögum.

Erindið var haldið á vinnustofu 2, sem Öruggara Norðurland Vestra skipulagði undir yfirskriftinni Heimilisofbeldi og landsbyggðin.
Á vinnustofunni voru einnig erindi frá Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur, sérfræðingi í byggðarannsóknum við Háskólann á Bifröst, Evu Dögg Sigurðardóttur, sérfræðingi í teymi tölulegra upplýsinga og rannsókna hjá Barna- og fjölskyldustofa og lektor við Háskóla Íslands, og Guðbjörgu S. Bergsdóttur, deildastjóra gagnavísindadeildar hjá Ríkislögreglustjóra.

Á vinnustofunni sköpuðust mikilvægar umræður um stöðu þolenda á landsbyggðinni, þörfina fyrir aukið samstarf og hvernig megi styrkja úrræði og stuðningskerfi um land allt.
Fundarstjóri á vinnustofunni var Ásdís Ýr Arnardóttir, sérfræðingur hjá Lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra og leiðtogi Öruggara Norðurland Vestra.

Auk þess voru haldnar fleiri vinnustofur á fundinum:

  • Vinnustofa 1 – Þverfagleg þjónusta við þolendur ofbeldis
  • Vinnustofa 3 – Ofbeldi og eldra fólk
  • Vinnustofa 4 – Drengir og karlar sem þolendur ofbeldis

Mörg mikilvæg málefni komu upp á fundinum og vöktu athygli þátttakenda. Í kjölfarið sköpuðust gagnlegar og mikilvægar umræður um hvernig hægt sé að efla samstarf, bæta þjónustu og styrkja úrræði fyrir þolendur ofbeldis um land allt.

Scroll to Top