Opinn fundur fyrir frambjóðendur fór fram í Aðalstræti 14 þriðjudaginn 21. apríl, þar sem gestir fengu innsýn í þá fjölbreyttu og mikilvægu starfsemi sem fer fram í húsinu.
Dagurinn heppnaðist afar vel og var mæting mjög góð, með fullt hús af áhugasömum þátttakendum. Fulltrúar frá Aflinu, Kvennaathvarfinu, Píeta og Bjarmahlíð kynntu starfsemi sína og lögðu áherslu á mikilvægi þeirrar þjónustu sem þar er veitt.
Eftir kynningar gafst tækifæri til frekari umræðna í notalegu umhverfi, en veðrið lék við gesti og sátu margir úti þar sem spjallað var um ýmis samfélagsmál yfir léttum veitingum.
Við þökkum kærlega fyrir komuna og afar vel heppnaðan dag.






