Heimsókn til Fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar

Þann 11.mars s.l. fóru formaður stjórnar, framkvæmdastýra, fræðslustýra og kynningastýra Aflsins til Reyðarfjarðar og heimsóttu Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar.

Heimsóknin fór í að kynna starfsemi og þjónustu Aflsins sem er í boði á Austurlandi fyrir starfsfólki Fjölskyldusviðs. Með heimsókninni vildum við ekki aðeins færa þjónustu okkar nær íbúum Austurlands, heldur einnig styrkja og dýpka samstarf okkar við Fjarðabyggð , með það að markmiði að auka stuðning og bæta þjónustu fyrir þolendur sem þörf hafa á henni.

Málefnalegar og góðar umræður sköpuðust í kjölfarið og stefnt var á aukið samstarf á svæðinu í kjölfarið.

Flottur hópur tók á móti okkur á Reyðarfirði.
Scroll to Top