Alþjóðlegt átak gegn kynbundnu ofbeldi

25. nóvember er Alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi.
Árleg ljósaganga fór fram í dag á Akureyri og Aflið ásamt Kvennaathvarfinu létu sjá sig og tóku þátt til að sýna stuðning.

Þrír klúbbar, Zontaklúbbarnir Þórunn hyrna og Zontaklúbbur Akureyrar, ásamt Soroptimistaklúbbi Akureyrar, stóðu fyrir göngunni í dag til að vekja athygli á málefninu og lýsa yfir andstöðu gegn ofbeldi á stúlkum og konum, sem og öllu öðru ofbeldi. Gengið var frá Zontahúsinu, Aðalstræti 54, meðfram Leirutjörninni og út að Aðalstræti 14. Þar flutti ávarp séra Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur í Akureyrarkirkju.

Scroll to Top