Heimsókn í Fjölskyldusvið Múlaþings

Mánudaginn 10.mars fóru formaður stjórnar, framkvæmdastýra, fræðslustýra og kynningastýra Aflsins til Egilsstaða og heimsóttu Fjölskyldusvið Múlaþings.

Heimsóknin fór í að kynna starfssemi og þjónustu Aflsins sem er í boði á Austurlandi fyrir starfsfólki Múlaþings. Með heimsókninni vildum við ekki aðeins færa þjónustu okkar nær íbúum Austurlands, heldur einnig styrkja og dýpka samstarf okkar við barna- og fjölskylduvernd Múlaþings, með það að markmiði að auka stuðning og bæta þjónustu fyrir þolendur sem þörf hafa á henni.

Við þökkum kærlega fyrir móttökurnar og daginn með þessum glæsilega hóp.

Scroll to Top