Þann 9. maí síðastliðinn var haldinn 3. fundur Öruggara Norðurlands vestra í Ljósheimum í Skagafirði. Fundurinn var vel sóttur og áherslan var á farsæld barna og ungmenna, þar sem meðal annars var rætt um sameiginlega forvarnaáætlun svæðisins, FORNOR.
Á fundinum gekk SSNV formlega til liðs við verkefnið Öruggara Norðurland vestra með undirritun samstarfssamnings. Með þessu skrefi styrkja samtökin enn frekar þverfaglegt samstarf um öryggi og velferð íbúa á svæðinu.
Sigurður Hólmar Kristjánsson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, lýsti ánægju með árangur samstarfsins og sagði: „Við höfum séð mikinn ávinning af þverfaglegu samstarfi á undanförnu ári. Það hefur skapað traust á milli aðila, styrkt tengslanet og skilað sér í markvissari þjónustu við íbúa og gesti Norðurlands vestra. Sérstaklega ánægjulegt er að sjá í þjónustukönnun lögreglunnar aukið traust íbúa.“
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, lagði áherslu á mikilvægi samstarfsins og sagði við undirritunina: „Framundan er að styðja sveitarfélög við uppbyggingu á svæðisbundnu farsældarráði á Norðurlandi vestra í þágu farsældar barna. Þátttaka okkar í Öruggara Norðurlandi vestra er að okkar mati mikilvægur þáttur í að styðja við sameiginlega stefnu og að góð þverfagleg verkefni eins og FORNOR fái áframhaldandi brautargengi.“
Með þessari undirritun undirstrikar SSNV enn frekar áherslu sína á samstarf sem leiðir til bættrar þjónustu og aukinnar velferðar íbúa á Norðurlandi vestra.

og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, við undirritun samningsins.
