Ársskýrslur

Viðtöl

Einstaklingsviðtölum fjölgaði um 94% frá fyrra ári og hefur aldrei verið svo mikil aukning milli ára. Árið 2007 voru viðtölin alls 147 en árið 2008 voru þau 285. Þar af voru 274 viðtöl við þolendur kynferðisofbeldis og 11 við aðstandendur. Hvert viðtal er áætlað um 1 klst.

Nýir einstaklingar voru alls 94:

  • Konur               78
  • Karlmenn           5
  • Aðstandendur   11

Sýnileiki félagsins og starfskvenna eykst með hverju árinu. Þess vegna hefur það færst í aukana að fólk nálgist starfskonur Aflsins á förnum vegi til að forvitnast um starfsemi félagins og þá valkosti sem það eða þeirra nánustu hafa til að vinna úr sínum málum.

Símtöl

Síminn er opinn allan sólarhringinn og skiptu símtölin hundruðum. Erfitt er að halda nákvæma skrá yfir öll símtöl þar sem margir hringja oftar en einu sinni. Símtöl bárust fá öllu landinu.

Námskeið

3 stjórnarkonur Aflsins fóru á námskeið hjá Blátt áfram sem hét Verndarar barna.

Þar fór fram forvarnarþjálfun gegn kynferðisofbeldi á börnum.

Einnig fór ein stjórnarkona á námskeið hjá Stígamótum.

Sjálfshjálparhópar

Snemma á árinu fóru af stað 3 hópar og síðan 4 hópar á haustmánuðum vegna mikillar eftirspurnar. Venjan er að 6 til 8 konur séu í hverjum hóp. Hver hópur fer yfir 17 atriði sem tengjast afleiðingum kynferðis- og/eða heimilisofbeldis. Hópurinn hittist 13-15 sinnum í 4-5 klst. í senn.

Styrktartónleikar

Styrktartónleikar voru haldnir í september. Ágætlega tókst að fá hljómsveitir og skemmtikrafta til liðs við okkur. Fleiri gestir komu en árið áður og voru því starfskonur félagsins ánægðar með árangurinn. Takmark tónleikanna var að koma nafni félagsins út í þjóðfélagið og auka vitund fólks og það fannst okkur takast.

Húsnæði

Aflið er til húsa að Brekkugötu 34 á Akureyri og er þar með aðstöðu í húsi Lautarinnar. Starfskonur Aflsins hafa bætt aðstöðuna til muna frá 2007 í samvinnu við starfsfólk Lautarinnar. Nú er mun betri aðstaða fyrir einkaviðtöl og sjálfshjálparhópa.  Aðstaðan í Brekkugötunni er á vegum Akureyrarbæjar og er Aflinu að kostnaðarlausu.

Starfsmaður

Langþráður draumur varð að veruleika á haustmánuðum þegar starfsmaður var ráðinn til félagsins. Hlutverk hans er að sjá um styrkumsóknir og vera upplýsinga- og fjölmiðlafulltrúi félagsins.

Verslunarmannahelgin

Um verslunarmannahelgina var Aflið með sólarhringsvaktir eins og fyrri ár. Tveir til þrír starfsmenn voru á vakt í senn frá hádegi á föstudegi til hádegis á mánudegi. Alls voru það 11 konur sem tóku þátt í starfi Aflsins þessa helgi. Akureyrarbær greiddi fyrir hönd Einnar með öllu til Aflsins þann kostnað sem varð til vegna starfsmanna. Aðstaða fyrir viðtöl og gistingu var í húsnæði Aflsins í Brekkugötu 34. Þessa helgi leituðu 2 einstaklingar til Aflsins. Margar fyrirspurnini bárust vegna eldri mála. Svo virðist sem sýnileiki starfskvenna Aflsins auðveldi fólki að nálgast þær með eldri mál.

Forvarnir, fræðsla og kynningarstarf

Mikil fyrirlestratörn fór af stað snemma á árinu í samstarfi við Hjálmar Sigmarsson sérfræðing hjá Jafnréttisstofu og félaga í karlahópi Femenistafélags Íslands,

NEI hópnum. Undirbúningur hafði staðið frá árinu 2007 og var þá stefnan sett á grunn- og framhaldsskóla Akureyrar. Farið var í Menntaskólann á Akureyri, Brekkuskóla, Síðuskóla, Glerárskóla, Lundarskóla og Oddeyrarskóla. Einnig var farið í grunn- og framhaldsskóla Húsavíkur.

Einnig voru fyrirlestrar haldnir í Símey, Menntasmiðjunni, fyrir Fagfélag Félagsfræðinga á Norðurlandi, Barnaverndarráð, starfsfólk og stjórn Heilsugæslunnar á Akureyri, Zontafélög Akureyrar og 2 fyrirlestrar voru haldnir í Verkmenntaskólanum á Akureyri

Stjórn Aflsins var boðið í sjónvarpsþátt Kolfinnu og Ásdísar á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Þar var starfsemi Aflsins kynnt og miklar umræður spunnust í kringum málefnið í þættinum. Sterk og mikil viðbrögð urðu í formi hringinga og tölvupósta til Aflsins og leituðu margir þolendur til félagins eftir að hafa séð þáttinn.

Félagið fékk nýja heimasíðu sem er aflidak.is sem auðveldar fólki að nálgast upplýsingar um félagið.

Fjármál

Ríkissjóður Íslands setti Aflið á fjárlög 2008 sem tryggði félaginu 2 milljónir í styrk það árið. Þetta var algjör vendipunktur fyrir félagið þar sem loksins var hægt að greiða fyrir vinnu starfskvenna, ráða starfsmann og þar með auka til muna þjónustuna sem stendur þolendum og aðstandendum þeirra til boða.

Landsbankinn tók Aflið inn í verkefnið „Leggðu góðu málefni lið“ þar sem notendur einkabanka Landsbankans geta valið á milli um 90 félaga til að styrkja. Notandinn velur sjálfur upphæðina og hversu oft hann styrkir.

Fjármál frh.

Styrkir ársins 2008 voru 19 talsins alls kr. 4.092.000.

Tekjur ársins voru kr. 4.325.836 og gjöld kr. 4.206.914.

Inneign í lok árs var því kr. 118.922.

Styrkir
Akureyrarbær

250.000

Dalvíkurbyggð

30.000

Eining-Iðja

50.000

Fjallabyggð

25.000

Grýtubakkahreppur

15.000

Norðurþing

30.000

Ríkissjóður Íslands

2.000.000

Sjóvá

60.000

Styrkir einstaklinga

207.000

Sveitarfélagið Skagafjörður

100.000

Verkalýðsfélag Þórshafnar

25.000

Zontaklúbbur Akureyrar

100.000

Zontasamband Íslands

1.000.000

Alls

3.892.000

Styrkir ætlaðir sérstökum verkefnum
Akureyrarbær-verslunarmannahelgi

200.000

Alls

200.000

Styrkir alls

4.092.000

Gjöld

Tekjur

Fært frá fyrra ári

80.227

Styrkir alls

4.092.000

Fjármagnstekjuskattur/Innvextir

7.211

72.167

Sími

63.611

Auglýsingar

100.425

Skrifstofa o.fl.

87.459

Bæklingagerð

56.064

Sjálfshjálparhópar

1.092.234

Kynningarstarf

161.640

Styrktartónleikar

72.860

81.442

Verslunarmannahelgin

202.189

Einkaviðtöl

519.000

Verktakalaun

1.500.000

Laun starfsmanns

251.750

Launatengd gjöld

44.277

Námskeið

46.960

Bankakostnaður

1.234

Alls

4.206.914

4.325.836

Uppgjör ársins

Árið 2008 var mjög annasamt fyrir Aflskonur. Aldrei hafa fleiri sótt í þjónustu félagsins eins og þetta ár. 32% aukning var í komum nýrra einstaklinga, 94% aukning í einkaviðtölum en sjálfshjálparhópar voru 7 eins og árið áður og stóðu því í stað.

Öll þjónusta við þolendur kynferðis- og/eða heimilisofbeldis og aðstandendur þeirra er þeim að kostnaðarlausu og skiptir það því miklu máli að félagið naut góðvildar sveitarfélaga, ríkisins,einstaklinga og fyrirtækja sem styrktu félagið rausnarlega. Tókst að veita öllum þeim þjónustu sem óskuðu.

Stjórn Aflsins

Stjórn Aflsins skipa eftirfarandi konur:

  • Anna María Hjálmarsdóttir – formaður
  • Sæunn Guðmundsdóttir – formaður
  • Sara Hlín Jónsdóttir – gjaldkeri
  • Viktoría Jóhannsdóttir – meðstjórnandi
  • Steinunn B. Hreiðarsdóttir – meðstjórnandi
  • Jóhanna Guðný Þorsteinsdóttir – meðstjórnandi
  • Hannesína Scheving – tengiliður við neyðarmóttöku SA

    Síðst uppfært: 23. 7. 2009.