Símavakt
Aflið býður upp á símavakt allan sólarhringinn.
Símavaktin er fyrir alla sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og/eða heimilisofbeldi og aðstandendur þeirra sem óska eftir ráðgjöf.
Það þarf mikinn kjark til að leita sér aðstoðar eftir áfall af þessum toga og er sérstaklega tekið tillit til þess þegar leitað er til Aflsins, því þar starfa sem leiðbeinendur einungis þeir sem eru sjálfir þolendur ofbeldis.
Öll þjónusta Aflins við þolendur og aðstandendur þeirra er þeim að kostnaðarlausu.


