Sagan mín
Aflið óskar eftir reynslusögum til birtingar á vefsíðunni.
Styrkur okkar felst meðal annars með því að deila reynslu hvort með öðru. Allir hafa sína sérstöku sögu að segja og það er afhjúpunin og sannleikurinn sem gerir okkur frjáls og hjálpar okkur.
Það getur hjálpað mörgum að lesa um reynslu og upplifun annarra sem orðið hafa fyrir sambærilegu ofbeldi. Það getur reynst mikilvægt fyrir einstaklinginn að vita að hann er ekki einn, að vita að aðrir hafi upplifað sambærilegt ofbeldi.
Aðeins ein reynslusaga er á vefnum eins og stendur. Við óskum eftir fleiri sögum því þær verða aldrei of margar.
Það að segja frá er ein leið til að sigra “gerandann”, því við eigum skilið að lifa lífinu og stjórna því sjálf án “hans afskipta”.
Vinsamlegast sendið okkur sögu ykkar á aflid@aflidak.is og verður hún þá birt samkvæmt ykkar eigin ósk (hvort sem það er undir nafni, nafnlaust eða undir dulnefni).
Hér fyrir neðan er hægt að lesa þær sögur sem okkur hafa þegar borist:

