“Aflið á vaktinni að venju um Versló”

30.7.2010 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Aflið verður að venju á vaktinni um Verslunarmannahelgina. Við verðum á röltinu um bæinn með nýju bæklingana okkar sem við erum afar ánægðar með. Um helgina mun mótorhjólafólk alls staðar af landinu hittast á Akureyri og fá sér súpu og safna peningum til styrktar Aflsins. Þetta er nú orðið að árlegum viðburði sem þetta mæta fólk hittist og kemur færandi hendi og erum við mjög þakklátar fyrir það.

Við vonum að hátíðir um allt land fari fallega fram undir sólskini og sunnan vindum.

Segðu okkur endilega þína skoðun á þessari færslu!