“Þjónusta í fullum gangi á landsbyggðinni”

12.3.2010 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Þjónusta í fullum gangi á landsbyggðinni
 
Af gefnu tilefni viljum við frá Aflinu á Akureyri og Sólstöfum Vestfjarða ítreka að ekki hefur dregið úr þjónustu og starfsemi okkar, heldur hefur þjónusta aukist á milli ára.
 
Þrátt fyrir skerðingu á fjármagni þá eru samtökin að eflast. Hjá Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldis var 14 % aukning á einkaviðtölum árið 2009 og árið á undan 94 % aukning. Þess má geta að tvær nýjar starfskonur eru að hefja störf og önnur þeirra mun svo starfa á Sauðárkróki. Skjólstæðingar keyra langar vegalengdir til að sækja viðtöl og hópastarf. Forvarnarstarfið er alltaf að aukast enda þörfin sem aldrei fyrr.
 
Sólstafir Vestfjarða, sjálfshjálparsamtök fyrir þolendur kynferðisofbeldis hafa líka aukið þjónustu sína.  65 % aukning var á komu einstaklinga árið 2009 og voru einstaklingsviðtölin um 70. Sólstafir sinna miklu forvarnarstarfi og eru í samstarfi við Blátt áfram, sem dæmi þá hafa 300 manns setið námskeiðið Verndari barna og yfir 300 skólabörn setið fyrirlestra á undanförnum misserum.
 
Sólstafir Vestfjarða og Aflið á Akureyri vinna markvisst að sporna við ofbeldi í samfélaginu og að bæta hagi og aðbúnað þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi eða eru í áhættuhóp hvað þetta varðar. Það er sorgleg staðreynd en mikilvægt að halda því til haga að þörfin fyrir þjónustu hefur aldrei verið meiri en nú á þessum samdráttartímum. Aflið og Sólstafir hafa með miklu sjálfboðaliða starfi tekist að auka mjög svo mikilvæga þjónustu við þolendur ofbeldis.
 
nánar
Guðrún Þórs
talskona Aflsins 6632848
 
Harpa Stefánsdóttir
talskona Sólstafa 8670394

Segðu okkur endilega þína skoðun á þessari færslu!