Ungir kynferðisafbrotamenn

16.2.2010 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Aflskonur fóru um helgina á málþing þar sem yfirskriftin var Ungir kynferðisafbrotamenn, málþingið var haldið á vegum Blátt áfram og Háskóla Reykjavíkur í einu af húsnæði skólans. Á málþinginu voru ýmsir sem tóku til máls,  fulltrúar ríkissaksóknar, barnaverndarstofu, sálfræðingar, Blátt áfram, háskólakennarar og ungur kynferðisafbrotamaður. Málþingið vakti miklar umræður enda salurinn yfirfullur af fólki víðsvegar að úr samfélaginu og ungum laganemum.

Segðu okkur endilega þína skoðun á þessari færslu!