Ofbeldi á Íslandi – Á mannamáli

8.2.2010 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Í Fréttatilkynningu frá Háskólanum á Akureyri kemur fram að hina kosta kona Þórdís Elva Þorvaldsdóttir heldur fyrirlestur þriðjudaginn 9. febrúar á Lögfræðitorginu kl 12.00 L 201 Sólborg v/ Norðurslóð. Hún mun einnig halda fyrirlestur uppí Menntaskólanum, MA um morguninn.

Á mannamáli – um ofbeldi á Íslandi

 

Undanfarið hefur orðið töluverð umræða um sálfræðimat á brotaþola í sakamáli. Í erindi sínu á Lögfræðitorgi ræðir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir um ýmsar hliðar slíks mats og varpar m.a. fram spurningum um andlega áverka og  hvort þörf sé á endurskoðun kynferðisbrotakafla almennra hegnignarlaga, misræmi í lagabálknum og fleira.

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir hefur undanfarin ár starfað  sem leikskáld, og hafa verk hennar verið sýnd í Borgarfjarðarleikhúsinu, Hafnarfjarðarleikhúsinu, RÚV og víðar. Hún hlaut tilnefningu til Íslensku leiklistarverðlaunanna (Grímunnar) sem leikskáld ársins 2006. Ofbeldi á Íslandi: Á mannamáli er hennar fyrsta bók, en hún er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Segðu okkur endilega þína skoðun á þessari færslu!