“Þjónusta í fullum gangi á landsbyggðinni”
Þjónusta í fullum gangi á landsbyggðinni
Af gefnu tilefni viljum við frá Aflinu á Akureyri og Sólstöfum Vestfjarða ítreka að ekki hefur dregið úr þjónustu og starfsemi okkar, heldur hefur þjónusta aukist á milli ára.
Þrátt fyrir skerðingu á fjármagni þá eru samtökin að eflast. Hjá Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldis var 14 % aukning á einkaviðtölum árið 2009 og árið á undan 94 % aukning. Þess má geta að tvær nýjar starfskonur eru að hefja störf og önnur þeirra mun svo starfa á Sauðárkróki. Skjólstæðingar keyra langar vegalengdir til að sækja viðtöl og hópastarf. Forvarnarstarfið er alltaf að aukast enda þörfin sem aldrei fyrr.
Sólstafir Vestfjarða, sjálfshjálparsamtök fyrir þolendur kynferðisofbeldis hafa líka aukið þjónustu sína. 65 % aukning var á komu einstaklinga árið 2009 og voru einstaklingsviðtölin um 70. Sólstafir sinna miklu forvarnarstarfi og eru í samstarfi við Blátt áfram, sem dæmi þá hafa 300 manns setið námskeiðið Verndari barna og yfir 300 skólabörn setið fyrirlestra á undanförnum misserum.
Sólstafir Vestfjarða og Aflið á Akureyri vinna markvisst að sporna við ofbeldi í samfélaginu og að bæta hagi og aðbúnað þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi eða eru í áhættuhóp hvað þetta varðar. Það er sorgleg staðreynd en mikilvægt að halda því til haga að þörfin fyrir þjónustu hefur aldrei verið meiri en nú á þessum samdráttartímum. Aflið og Sólstafir hafa með miklu sjálfboðaliða starfi tekist að auka mjög svo mikilvæga þjónustu við þolendur ofbeldis.
nánar
Guðrún Þórs
talskona Aflsins 6632848
Harpa Stefánsdóttir
talskona Sólstafa 8670394
“Við verðum að berjast gegn kynbundnu ofbeldi”
“Við verðum að berjast gegn kynbundnu ofbeldi” sagði Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra í dag á ráðstefnu Stígamóta sem bar yfirskriftina “nauðganir og viðbrögð samfélagsins við þeim”.
Hún sagði það skyldu ríkisvaldsins að láta málefnið til sín taka hversu fá nauðgunarmál rata til dómsstóla. nánar hér.
Aflskonur voru á svæðinu að sjálfsögðu að fagna afmæli Stígamóta sem var 20 ára í gær og málþingið haldið í tilefni af því.
Fjölmiðlavaktin fagnar
Fjölmiðlavaktin fagnar því að alþingi gerir sitt í jafnréttisbaráttunni sem er jú mannréttindabarátta sjá
Fjölmiðlavaktin
Fjölmiðlavaktin rakst á þessa frétt í dag sjá
Hvernig væri nú ef dómstólar þessa lands myndu bretta upp ermarnar eins og í fíkniefnadómunum hér forðum daga

