Ungir kynferðisafbrotamenn
Aflskonur fóru um helgina á málþing þar sem yfirskriftin var Ungir kynferðisafbrotamenn, málþingið var haldið á vegum Blátt áfram og Háskóla Reykjavíkur í einu af húsnæði skólans. Á málþinginu voru ýmsir sem tóku til máls, fulltrúar ríkissaksóknar, barnaverndarstofu, sálfræðingar, Blátt áfram, háskólakennarar og ungur kynferðisafbrotamaður. Málþingið vakti miklar umræður enda salurinn yfirfullur af fólki víðsvegar að úr samfélaginu og ungum laganemum.
Ofbeldi á Íslandi – Á mannamáli
Í Fréttatilkynningu frá Háskólanum á Akureyri kemur fram að hina kosta kona Þórdís Elva Þorvaldsdóttir heldur fyrirlestur þriðjudaginn 9. febrúar á Lögfræðitorginu kl 12.00 L 201 Sólborg v/ Norðurslóð. Hún mun einnig halda fyrirlestur uppí Menntaskólanum, MA um morguninn.
Á mannamáli – um ofbeldi á Íslandi
Undanfarið hefur orðið töluverð umræða um sálfræðimat á brotaþola í sakamáli. Í erindi sínu á Lögfræðitorgi ræðir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir um ýmsar hliðar slíks mats og varpar m.a. fram spurningum um andlega áverka og hvort þörf sé á endurskoðun kynferðisbrotakafla almennra hegnignarlaga, misræmi í lagabálknum og fleira.
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir hefur undanfarin ár starfað sem leikskáld, og hafa verk hennar verið sýnd í Borgarfjarðarleikhúsinu, Hafnarfjarðarleikhúsinu, RÚV og víðar. Hún hlaut tilnefningu til Íslensku leiklistarverðlaunanna (Grímunnar) sem leikskáld ársins 2006. Ofbeldi á Íslandi: Á mannamáli er hennar fyrsta bók, en hún er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

