Stutta pilsið mitt

23.12.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Stutta pilsið mitt

Það er ekki tilboð

Ekki ögrun

Ekki tilvísun

Að mig langi

Eða að ég selji mig.

Stutta pilsið mitt

Er ekki að biðja um það

Það vill ekki að þú

rífir það utan af mér

Eða dragir það niður

um mig.

Stutta pilsið mitt

Er ekki lögleg ástæða

Til þess að nauðga mér

Þótt hún hafi verið notuð áður

Þá mun hún ekki halda

Í réttarsölum nútímans.

Stutta pilsið mitt

Hvort sem þú trúir því eður ei

Kemur þér ekkert við.

Stutta pilsið mitt

Snýst um að uppgötva

Styrkinn í kálfunum mínum

Svalt haustloftið sem leikur

Um læri mín

Að leyfa öllu sem ég sé

Eða geng í gegnum

Eða upplifi

Að búa innra með mér.

Stutta pilsið mitt

Er ekki sönnun þess

Að ég sé heimsk

Eða óákveðin

Eða áhrifagjörn smástelpa.

Stutta pilsið mitt er ögrun mín

Ég leyfi þér ekki að hræða mig

Stutta pilsið mitt er ekki athyglissýki

Þetta er ég

Eins og ég er

Áður en þú lést mig hylja mig

Eða draga úr mér.

Þú skalt venjast því.

Stutta pilsið mitt er hamingja

Ég finn sjálfa mig snerta jörðina

Ég er hér.

Ég er heit.

Stutta pilsið mitt er frelsun

Fáni í her kvenna

Ég lýsi þessar götur, allar götur

Þjóðlendur píkunnar minnar.

Stutta pilsið mitt

Er skjaldbaka í vatni

Með litríkum syndandi fiskum

Sumarhátíð

Í stjörnubjörtu myrkri

Fuglasöngur

Lest sem ferðast inn í framandi þorp

Stutta pilsið mitt er rússíbani

Djúpur andardráttur

Tangósveifla

Stutta pilsið mitt

Er vígsla

Velþóknun

Hvatning

En fyrst og fremst

Er stutta pilsið mitt

Og allt sem undir því leynist

Mitt

Mitt

Mitt.

(Eve Ensler, höfundur Píkusagna (Vagina Monologues))

Með þessu ljóði bjóðum við öllum gleðilegra jóla

Kynbundið ofbeldi, vanræksla og ill meðferð

8.12.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Kynbundið ofbeldi, vanræksla og ill meðferð, námskeið í Háskólanum á Akureyri á vorönn

Kennt í fjarkennslu til Ísafjarðar, Egilsstaða, Selfoss og Hafnarfjarðar
Námið er 48 klst. og öllum opið en er kennt á meistarastigi. Einstaklingar sem vilja fá það metið til 10 ECTS eininga inn í meistaranám skulu skila verkefnum og mæta öðrum þeim kröfum sem slíkt nám krefst. Námið hentar þeim sem starfa við heilbrigðis- og félagsþjónustu, skólakerfið, löggæslu, dómskerfið og sjálfstætt starfandi aðilum sem vinna með fólki, einnig þeim sem hafa áhuga á að starfa á þeim vettvangi.

Námslýsing:
Viðfangsefni þessa námskeiðs er að kynna kynbundið ofbeldi, vanrækslu og illa meðferð; einkenni, afleiðingar, forvarnir og meðferð. Nemendur kynnast helstu þáttum varðandi áfallastreituröskun, birtingarmyndir þjáningar, grimmdar og illsku. Einnig forvörnum, heilsufarslegum afleiðingum kynferðislegs ofbeldis og dómum varðandi slík mál. Þá verður einnig vikið að helstu þáttum varðandi jafnrétti, ofbeldi í nánum samböndum, vanrækslu, vændi, klám og meðferð fyrir þolendur og gerendur ofbeldis.
Kennd verða fjögur lotubundin námskeið, 12 kennslustundir hvert:
1. 15.-16. janúar: Kynning, áfallastreituröskun, birtingarmynd þjáningar, forvarnir gegn kynferðisbrotum og dómar í ofbeldismálum.
2. 19.-20. feb: Kynferðislegt ofbeldi og afleiðingar, jafnrétti, nauðganir, gerendur í kynferðisbrotum, vændi og klám.
3. 19.-20. mars: Vanræksla, ofbeldi í nánum samböndum, nemendur kynna verkefni.
4. 16. apríl: Ráðstefna; Þögul þjáning kl. 09:00-16:00 og 17. apríl: Vinnusmiðja; stutt framsöguerindi og umræður kl. 09:00-12:00.

Umsjónarkennarar:
Sigrún Sigurðardóttir, M.S., Ph.D. nemi í lýðheilsu við HÍ
Netfang: sigrunsiggaboga@simnet.is
Dr. Sigríður Halldórsdóttir, prófessor heilbrigðisdeild HA
Netfang: sigridur@unak.is
Dr. Freydís Jóna Freysdóttir, MSW, Phd, félagsmálastjóri og lektor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands
Netfang: freydis@nordurthing.is
Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdarstýra Jafnréttisstofu á Akureyri
Netfang: kristin@jafnretti.is

FEMINISTAR VARA VIÐ ÁBYRGUM FEÐRUM

4.12.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Feministar vara við ábyrgum feðrum eryfirskrift fréttar á DV

sjá hér

Bravó Feministafélag Ísland