Leikfélag Akureyrar gefur Aflinu ágóða af miðasölu í annað sinn

18.11.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Leikfélag Akureyrar gefur Aflinu allan ágóðann af aðgangseyri sýningarinnar Lilju fimmtudaginn 19. nóvember

Leikfélag Akureyrar gefur Aflinu, samtökum gegn kynferðis og heimilisofbeldi allan ágóðann af aðgangseyri sem kemur inn af sýningunni Lilju fimmtudaginn 19. nóvember.
Leikfélagið er í annað sinn að gefa Aflinu fjármuni enda annað árið í röð sem Leikfélagið tekur til sýninga verk sem fjallar um ofbeldi og jú Aflið starfar á þeim vettvangi.

Þeir sem vilja sjá góða sýningu og styrkja gott málefni í leiðinni ættu ekki að láta þetta tækifæri fram hjá sér fara því næsta helgi er síðasta sýningarhelgin.

Mansal á Akureyri – viðbrögð

16.11.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Leikfélag Akureyrar stendur fyrir málþingi um mansal í Ketilhúsinu á Akureyri 17. nóvember næstkomandi klukkan 15:00.

Málþingið hefur hlotið yfirskriftina Mansal á Íslandi – viðbrögð? Tilgangurinn er meðal annars sá að inna yfirvöld eftir því hvernig brugðist verði við málum sem þessum, en einnig viljum við að almenningur fái leiðbeiningar um hvernig hægt sé að koma auga á hugsanlega brotaþola mansals, og upplýsingar um rétt viðbrögð. Við berum öll ábyrgð – og það er trú okkar að með því að opna umræðuna verði hægt að snúa vörn í sókn og uppræta glæpahringi, sem notfæra sér vonleysi og erfiða stöðu fólks til þess að selja það í þrældóm.

Á málþinginu mun Dóms- og mannréttindamálaráðherra, Ragna Árnadóttir flytja framsöguerindi ásamt Margréti Steinarsdóttur framkvæmdastjóra Alþjóðahúss, Guðrúnu Jónsdóttur forstöðukonu Stígamóta, sem einnig á sæti í nýstofnuðum viðbragðshópi gegn mansali á vegum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, og Fríðu Rós Valdimarsdóttur, mannfræðingi og höfundi skýrslunnar Líka á Íslandi, sem er niðurstaða rannsóknar á tæplega sextíu mansalsmálum á Íslandi á árunum 2006-2009. Að framsöguerindunum loknum fara fram pallborðsumræður þar sem ræðumenn sitja fyrir svörum ásamt aðila frá Aflinu og fleiri fagaðilum.

Málþingið hefst með sýningu á Lilju í Rýminu kl. 15.00. Að henni lokinni, um kl. 17.20 hefjast framsöguerindi í Ketilhúsinu og eftir stutt veitingahlé verða pallborðsumræður frá kl. 18.30.

Leikfélag Akureyrar hefur að undanförnu sýnt leikritið Lilju, en það byggir á sönnum atburðum og fjallar um örlög sextán ára stúlku frá Litháen sem seld var mansali í kynlífsiðnað til Svíþjóðar. Lilja hefur vakið sterk viðbrögð og uppselt hefur verið á hverju einustu sýningu.

Við uppsetningu verksins komust aðstandendur þess að því að mansal hefur verið stundað á Íslandi um árabil, án nokkurrar vitundar almennings. Um svipað leyti og Lilja var frumsýnd fór fyrsta mansalsmálið á Íslandi fyrir dóm, og daginn sem LA frumsýndi Lilju komst ung stúlka frá Litháen í hendur lögreglunnar á Suðurnesjum. Fljótlega kom í ljós að stúlkan er hugsanlegur brotaþoli mansals og í kjölfarið kom á daginn að fjölmennur glæpahringur hefur hreiðrað um sig á landinu.

Leikfélag Akureyrar býður upp á umræður eftir valdar sýningar á Lilju, sem mælst hafa vel fyrir. Leikhúsgestir hafa verið áhugasamir en um leið áhyggjufullir yfir því hversu útbreitt mansal er orðið hér á landi. Þetta varð kveikjan að því að ákveðið var að blása til málþings. Með því vill Leikfélag Akureyrar reyna að opna á enn frekari umræður um þessi mál og fá fram í dagsljósið reynslu fagaðila sem komið hafa að mansalsmálum, og ekki síst leita upplýsinga hjá yfirvöldum um hvernig þau hyggjast bregðast við þessum vágesti. Þetta er mál sem snertir okkur öll.

Allar nánari upplýsingar veitir leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, María Sigurðardóttir í síma 897 4820.

Handverk og bakkelsi til styrktar Aflinu

13.11.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Handverk og bakkelsi til styrktar Aflinu

Framkvæmdanefnd Aflsins stendur fyrir fjársöfnun til handa Aflsins eins og flestir vita eftir stórkostlega tónleika í Akureyrarkirkju nú fyrr í mánuðinum.

Nú eru þær aftur farnar af stað og eru búnar að planta sér á Jólamarkaði í nýrri verslun Bónusar í Naustahverfi.  Þar verða þær með borð fullt af ýmiss konar handverki og bakkelsi.  Ágóðinn rennur til Aflsins samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi.

Þær munu vera þar á föstudögum kl 15.00-19.00, laugardögum kl 10.00-18.00 og sunnudögum kl 12.00-16.00 eitthvað fram í desember.

Fjölmiðlavaktin

12.11.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Fjölmiðlavaktin rakst á þessa frétt á visi.is

sjá hér

6.11.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 
Karlakór Akureyrar-Geysis undir stjórn Valmars Valjaots á styrktartónleikum í gærkvöldi í Akureyrarkirkju

Karlakór Akureyrar-Geysis undir stjórn Valmars Valjaots á styrktartónleikum í gærkvöldi í Akureyrarkirkju

6.11.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 
Hundur í óskilum fluttu lagið Heims um ból á hækjur í Akureyrarkirkju í gærkvöldi

Hundur í óskilum fluttu lagið Heims um ból á hækjur í Akureyrarkirkju í gærkvöldi

6.11.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 
Framkvæmdanefnd Aflsins á Styrktartónleikunum í Akureyrarkirkju í gærkvöldi

Framkvæmdanefnd Aflsins á Styrktartónleikunum í Akureyrarkirkju í gærkvöldi

Full kirkja af fólki í Akureyrarkirkju á styrktartónleikum Aflsins í gærkvöldi

6.11.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Full kirkja var af fólki á styrktartónleikum Aflsins í Akureyrarkirkju í gærkvöldi. Framkvæmdanefnd Aflsins eða kraftakellurnar héldu þessa tónleika, þær fengu til liðs við sig um 45 tónlistarmenn og tæknimenn og allir gáfu vinnuna sína.  Það skapaðist ótrúleg stemmning þegar Karlakór Akureyrar / Geysis kom sér fyrir á altarinu og hófu upp raust sína. Valmar Valjaots hinn yndislegi kórstjóri stýrði kórnum og spilaði undir hjá flestum þeim sem komu fram um kvöldið. Heimir Ingimars kom sá og sigraði með klassískum söng með Karlakórnum, þvílík rödd sem maðurinn hefur.  Inga Eydal flutti írska tónlist og þeir Snorri Guðvarðarsson og hann Valmar Valjaots spiluðu undir, ekki má gleyma snilldarundirleik hennar Bryndísar Ásmunds á avocado sem var einnig kynnir kvöldsins. Það var svo fallegt að hlýða á Ingu syngja lagið eftir Sharon Shannon, meira af þessu Inga. Hundur í óskilum fluttu nokkur lög og spiluðu meðal annars á hækjur, mjög fyndnir og kirkjugestir áttu bágt með sig. Friðrik Ómar Júróvisjón snillingur tók nokkur lög og Valmar spilaði undir, hann er með mikla útgeislun og hefur greinilega gaman af að koma fram sem smitar út frá sér. Óskar Pétursson rak lestina og tók meðal annars Hamraborgina við mikinn fögnuð. Bryndís Ásmunds leik og söngkona var kynnir kvöldsins og hélt fallega utan um dagskránna.

Aflið á ykkur öllum mikið að þakka, tónlistarfólki, Framkvæmdanefndinni, bæjarbúum, Akureyrarkirkju og velunnurum Aflsins. Það var hreint út sagt ótrúlegt að finna fyrir velvild allra á þessari frábæru kvöldskemmtun og við sjáumst að ári.

Takk.