Tónleikar til styrktar Aflinu

30.10.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Tónleikar verða í Akureyrarkirkju þann 5. nóvember næstkomandi kl 20.00.  Fram koma Karlakór Akureyrar og Geysis, Friðrik Ómar, Óskar Pétursson, Inga Eydal, Hundur í óskilum og Heimir Ingimarsson. Kynnir kvöldsins er hún Bryndís Ásmundsdóttir leik og söngkona. Miðaverð er hógvært eða krónur 1000 og enginn pósi á staðnum.  Framkvæmdanefnd Aflsins undirbýr þessa flottu tónleika og eru þær óstöðvandi því þær eru einnig að hekla dúllur og baka marengs fyrir kaffihlaðborðið og handverkssöluna í desember, nánar auglýst síðar.

Lilja

9.10.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Aflið fór á æfingu hjá Leikfélagi Akureyrar á miðvikudagskvöld, sáum við ” Lilju ” verk sem frumsýnt verður í dag föstudag. Verkið er byggt á kvikmyndinni “Lilya 4 ever” og það var hreint út sagt magnað, til hamingu þið öll, leikarar, leikstjóri, búninga og leikmyndasmiðir og já allir. Magnþrungið verk um mjög þarft málefni, mansal og kynferðisofbeldi. Mælum með þessu.

sjá umfjöllun hér