þakkir til mótórhjólagengisins góða

4.8.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Um Verslunarmannahelgina er yfirleitt mikið að gera hjá okkur í Aflinu. Við skipulögðum gangandi vaktir og tvöfalda símavakt alla helgina. En sem betur fer þá var lítið leitið til okkar en hins vegar barst okkur peningagjöf. Mótorhjólafólk á Akureyri hittist og fengu sér súpu, settu bauk á borðið og í hann safnaðist kr 15.937 íslenskar og 2 evrur. Við viljum þakka mótórhjólagenginu fyrir þetta fallega og þarfa framtak.