28.7.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Aðalfundur Aflsins verður í kvöld, þriðjudaginn 28. júlí í húsnæði Aflsins að Brekkugötu 34, gengið inn bakatil. Aflið, samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi á Norðurlandi, hóf starfsemi sína árið 2002.

Meðal þess sem verður á dagskrá fundarins er hin mikla aukning þeirra sem leita til Aflsins síðustu misseri. Eins og sjá má á ársskýrslu 2008 þá var aukning þeirra sem leituðu til Aflsins 94 % frá árinu 2007 til 2008. Þolendur heimilisofbeldis leita í auknum mæli til Aflsins og bæta þarf snarlega úr húsnæðismálum samtakanna.

Verslunarmannahelgin er framundan og undirbúningur í fullum gangi og vakt alla helgina.

Látum ekki þolendur eina bera ábyrgðina

8.7.2009 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Látum ekki þolendur eina bera ábyrgðina!

Ný rannsókn um ofbeldi á Íslandi var gerð nú fyrir stuttu og er ein sú viðamesta í heiminum í dag. Haft var samband við 7000 konur en alls tóku 2764 konur þátt. Rannsóknin sýnir að fjórða hver kona á Íslandi verði fyrir einhvers konar ofbeldi af hendi sambýlismanns síns.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar má álykta að fjórðungur kvenna sem eru í skráðri sambúð og giftar verði fyrir ofbeldi af hendi sambýlismanns síns á Akureyri og eru þær um 1000.

18,2% af þeim konum sem tóku þátt í rannsókninni höfðu orðið fyrir andlegu ofbeldi af hálfu maka síns, 3,3% líkamlegu og 1,3% höfðu orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Yfir 11% þátttakenda hræðist maka sinn, bæði hvað viðkomandi sagði og gerði.

Rannsóknin var birt í júlíútgáfu hjúkrunarfræði-tímaritsins Journal of Advanced Nursing. Rannsóknin var gerð af Brynju Örlygsdóttur, doktor í hjúkrunarfræði og Erlu Kolbrúnu Svavarsdóttur sem er prófessor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.

Okkur hjá Aflinu samtökum gegn kynferðis – og heimilisofbeldi er kunnugt um þennan mikla fjölda kvenna sem búa við þessar hörmulegu aðstæður og staðfestir þessi rannsókn reynslu okkar. Von okkar er sú að niðurstaða rannsóknarinnar veki almenning til umhugsunar. Nauðsynlegt er að tryggja á erfiðum tímum að niðurskurður lendi ekki á þeim félögum og samtökum sem starfa á þessum vettvangi, heldur þarf að efla stuðninginn og leggja aukna áherslu á forvarnir og fræðslu.

Látum ekki þolendur eina bera ábyrgðina.