Gleðilega hátíð
Stjórn Aflsins óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Stjórnin þakkar þeim sem studdu Aflið á árinu sérstaklega fyrir stuðninginn.
Litla hetja
Aflinu barst þetta hjartnæma ljóð til birtingar…
Litla stúlkan var svo hrædd
svona lítil og illa klædd
Hann hafði snert hana hér og þar
já í raun allsstaðar
En hún grét ekki, var svo stór
jafnvel þó sálin og hugurinn orguðu í kór.
Hún beit,sparkaði og sló
en hann, raun bara hló. Lesa
Zontaklúbbur Akureyrar styrkir Aflið enn á ný
Zontaklúbbur Akureyrar afhenti Aflinu veglegan styrk upp á 100.000 krónur við sértaka athöfn á Ráðhústorgi í gær. Þetta verður að teljast einstaklega vegleg gjöf þar sem það eru aðeins nokkrir mánuðir síðan Zonta styrkti Aflið um 1.000.000 krónur.
Aflið færir Zontaklúbbnum kærar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning.
Aflið kynnt á Ráðhústorgi
Eftirfarandi ræðu flutti Sigurður Hólm Gunnarsson, nýráðinn starfsmaður Aflsins, á Ráðhústorginu 5. desember 2008 vegna 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi.
Ég þakka fyrir að fá tækifæri hér til að kynna fyrir ykkur hvað við gerum í Aflinu. Aflið er samtök sem voru stofnuð á hér á Akureyri árið 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta.
Aflið er fyrir alla sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og/eða heimilisofbeldi og aðstandendur þeirra sem óska eftir ráðgjöf. Lesa
Segðu okkur þína skoðun
Nú er hægt að skrifa athugasemdir við flestar færslur á vefsíðu Aflsins. Lesendur eru hvattir til að tjá sig um það sem hér er ritað. – Vefstjóri.


