Nýr starfsmaður fundinn og ráðinn!

13.10.2008 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Sigurður Hólm Gunnarsson iðjuþálfanemi með meiru hefur verið ráðinn sem talsmaður samtakanna. Um leið og við bjóðum Sigurð velkominn til starfa, fögnum við því að hafa fengið svona fjölhæfan og reyndan starfskraft og er hann án efa góður liðsauki fyrir Aflið. . Mun hann sjá um ýms tilfallandi störf, mun hann að öllum líkindum einnig sjá um þessa heimasíður framvegis.

Styrktartónleikar Aflsins

3.10.2008 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Nú er styrktartónleikunum lokið og gengu þeir mjög vel. Hefði verið gaman að sjá fleiri í Sjallanum, en þeir sem komu voru mjög ánægðir í alla staði. Uppboðið á hlutum frá ýmsum fyrirtækjum tókst vel og seldist allt.

Nú fer Aflið á fullt í að ráða starfsmann, hópastarfið er í startholunum og ýmislegt sem er á döfinni nú með haustinu. Lesa

Styrktartónleikar Aflsins

2.10.2008 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Styrktartónleikar Aflsins 2.október í Sjallanum

Aflið ætlar að halda styrktartónleika í Sjallanum 2.október, til styrktar samtökunum.
Þar munu koma fram m.a.

Hvanndalsbræður,

Hundur í óskilum,

Einar Ágúst,

Eyþór Ingi,

Siggi kapteinn

Sniglabandið.

Skúli Gauta verður kynnir.

Fylgist með okkur, nánari upplýsingar koma síðar…