Starfsmaður óskast

19.8.2008 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Óskum eftir starfsmanni í 20-50% starf til að sjá um að sækja um styrki, vera andlit samtakanna og jafnvel fleira.

Starfsmaður þarf að vera sjálfstæður í starfi, lipurð í samskiptum og skapandi. Hafa almenna tölvukunnáttu.

Laun og vinnutími samkomulag.

Aðalfundur 2008

13.8.2008 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Aðalfundur samtakanna verður haldinn miðvikudaginn 13. ágúst og hefst kl. 20:00 í Zontahúsinu Aðalstræti 54. Ak.

Dagskrá:

Venjuleg aðalfundarstörf.

Kaffi og umræður eftir fund.

Allir hjartanlega velkomnir.

Stjórnin.

Ný vesti!

4.8.2008 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Eins og þið hafið sennilega tekið eftir voru Aflskonur í nýjum vestum á röltinu um helgina og gaf Elfa Ólafsd. vestin en B4B merkingar gaf áletrunina og erum við mjög ánægðar með bæði að hafa fleiri vesti og nýju merkinguna. Hjartans þakkir fyrir þetta.

“EIN MEÐ ÖLLU”

4.8.2008 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Aftur leitað til neyðarþjónustu FSA í morgun og hafa þá tvær þurft að leita þangað það sem af er og sýnir skýrt hversu brýnt er að halda áfram að baráttunni gegn kynferðiofbeldi sem á ALDREI að eiga sér stað.

“EIN MEÐ ÖLLU”

2.8.2008 | Aflið
Flokkar: Fréttir 

Sól og blíða, sumarsól og afslöppun lýsa vel því sem af er helgarinnar, vel hefur verið að öllu staðið og eru allir sem koma að hátíðinni afskaplega ánægðir með gang mála fyrir utan að leitað var til neyðarmóttökunnar á FSA í morgun og er það “einum of mikið” og allt of stór og mikill skuggi á hátíð sem fer a.ö.l. vel fram. Lesa