“EIN MEÐ ÖLLU”
Eins og allir vita verður “Ein með öllu” haldin um verslunarmannahelgina eins og undanfarin ár. Munum við Aflskonur verða á vakt alla helgina eins og hingað til.
Óskum við ykkur góðrar og ofbeldislausrar skemmtunar um helgina og munið:
“Að koma fram við aðra eins og þið viljið að aðrir komi fram við ykkur”
Loksins – loksins
Við Aflskonur erum himinlifandi yfir því að sjá að kynferðisafbrotamaður þarf sitja í gæsluvarðhaldi þar til að dómur fellur.
Það hefur auðvitað reynst þolendum tvöfalt áfall að mæta gerendum á götu stuttu seinna. Fyrir utan það höfum við aldrei skilið af hverju ekki gilda sömu reglur fyrir öll afbrot. Og vonumst við til að fara að sjá fleiri framfarir í dómskerfinu.
Sagan mín
Aðeins ein reynslusaga er komin, óskum eftir fleiri sögum því þær verða aldrei of margar.
Halló duglegu konur og karlar!
Er ekki einhver í stuði til að skrá söguna sína til birtingar á vefnum okkar því styrkur okkar felst í því að deila með hvor annarri eða hvort öðru og það hafa jú allir “sína sérstöku sögu” að segja. Og það er einmitt afhjúpunin og sannleikurinn sem gerir okkur frjáls og hjálpar okkur öll litlu skrefin sem við tökum á leiðinni út úr “svarta kolakassanum” eða hvernig sem við upplifðum það ofbeldi sem við höfum orðið fyrir. Og svo hálpar það hinum auðvitað að vita um fleiri með sömu reynslu, að við erum ekki “ein” plús það að þetta er eina leiðin til sýna fram á að við viljum ekki ofbeldi og reynum að koma í veg fyrir að lítil börn eða fulllorðnir þurfi að ganga í gegnum þá erfiðu reynslu af öllum okkar mætti. Lesa
Zonta styrkir Aflið um 1.000.000 kr.
Eins og áður var sagt frá hér á síðunni þá seldu zonta_afhendir_aflinu_1.000.000
Zontaklúbbarnir rósanælur til styrktar Aflinu, Stígamótum og Sólstöfum þann 7.-8. mars sl.
Mikil sala var og er það frábært hversu vel þjóðin tók í að styrkja þetta mikilvæga málefni og mikill vilji að taka höndum saman til koma í veg fyrir að svona alvarlegir brot á persónulegum réttindum einstaklingsins eigi sér stað. Lesa

