ÍNN
Stjórnin leggur land undir fót í lok vikunnar til að taka þátt í umræðum í sjónvarpsþættinum INNTV.IS í umsjón Kolfinnu Baldvins og Ásdísar Olsen. Nánari upplýsingar síðar.
Brad Evans heimsótti Aflið
Brad Evans, stjórnarmálaerindreki sendiráðs Bandaríkjanna heimsótti Aflið sl. sumar.
Brad Evans stjórnmálaerindreki ferðast um landið á vegum sendiráðs Bandaríkjanna til að kynna sér hvernig fólkið í landinu hagar lífi sínu og hvernig félagasamtökum eru rekin og hvaða stuðning ríkisstjórn veitir.
Hann talar ágæta íslensku og var þetta bæði fróðleg og skemmtileg heimsókn, auðvitað með íslensum pönnsum og öðru meðlæti.
Stjórnin reyndi að skýra sem best frá starfsemi samtakanna og hvaða stuðning við fáum frá stjórnvöldum sem því miður hafði nánast enginn verið á þeim tíma.
Við þökkum Brad fyrir ánægulega heimsókn og velvild í garð Aflsins sem hann ætlaði að koma á framfæri við íslensk stjórnvöld.

