Vinningaskrá
Vinninga má nálgast fimmtudaginn 20. des. kl. 17:00 – 18:00 að Brekkugötu 34, gengið inn baka til eða hringja í síma Aflsins:
Sími: 461 5959 GSM: 857 5959 Lesa
Lay Low og LA styrkja Aflið
Lay Low styrkir Aflið af öllum ágóða af sölu hljómdisks Ökutíma
Eftir sýningu “Ökutíma” þann 9. des. sl. voru mjög góðar umræður í tengslum við sýninguna og efni hennar. Var þátttaka mjög góð og voru umræður bæði upplýsandi og gefandi.
Einnig var tilkynnt að Lay Low sem samdi tónlistina í Ökutímum ætlar að gefa allan ágóða af sölu disksins sem verður útgefinn á 24. janúar 2008 til Aflsins og Leikfélagið ætlar að gefa allan ágóða af síðustu sýningu ársins. Lesa
Leikhúsið – Ökutímar – Umræður
Við viljum vekja athygli á að eftir sýninguna 9. des. verða opnar umræður í tengslum við efni sýningarinnar. Konur frá Aflinu munu að sjálfsögðu mæta og taka þátt í þeim umræðum.
Þökkum LA enn og aftur fyrir frábært framtak.
Happdrætti
Nú eru aðeins 7 dagar þangað til dregið verður í happdrættinu og salan auðvitað gengið eins og í sögu nánast barist um miðana enda frábærir vinningar. En hafið endilega samband ef ykkur langar í miða.
Happdrætti
Til fjáröflunar erum við að undirbúa happdrætti sem dregið verður úr um miðjan desember 2007, nánar auglýst síðar. Mörg fyrirtæki og einstaklingar hafa sýnt okkur mikinn stuðning og gefið frábæra vinninga.
Lesa
Leikhúsferð
Magnús leikhússtjóri hafði samband við Aflið og bauð stjórninni á sýningu leikfélagssins “Ökutíma” sem er í sýningu um þessar mundir við frábæran orðstý.
Nokkrar eru þegar búnar að fara og líkaði sýningin mjög vel. Það er farið mjög vel með þetta viðkvæma mál og leikarar skila sínu af alúð og áhrifaríkan hátt.
Leikfélag Akureyrar á heiður skilið fyrir þetta framtak því að það er svo sannarlega þörf fyrir að vekja athygli og umræður á þessu vel falda “leyndarmáli”.
Um leið og Aflið þakkar innilega fyrir sig og óskar LA til hamingju með þetta frábæra framtak þá viljum við vekja athygli á að eftir sýninguna 9. des. verða opnar umræður í tengslum við efni sýningarinnar. Konur frá Aflinu munu að sjálfsögðu mæta og taka þátt í þeim umræðum.
Happdrætti
Happdrætti
Nú eru aðeins 12 dagar þangað til dregið verður í happdrættinu og salan auðvitað gengið eins og í sögu nánast barist um miðana enda frábærir vinningar. En hafið endilega samband ef ykkur langar í miða.

